Lögregluna í Austurstræti og miðbæ
Það eru gengi að ráðast á gangandi vegfarendur berja og stórslasa að tilefnislausu í miðbænum um helgar og ef árásirnar eru kærðar þá ertu sóttur heim og barinn þar. Það þarf að tryggja að lögreglan sé sýnileg til klukkan 3 eftir miðnætti og með varðstöð í Austurstræti. Lögreglan þarf fjármagn til að berjast gegn svona gengjum. Reykjavík er smáþorp og það hlýtur að vera viðráðanlegt að tryggja öryggi borgaranna.
Það vantar algerlega varanlega viðveru Lögreglu í miðbæinn - stöðin við Hlemm er ekki einusinn með opið aðgengi að Lögreglunni allan sólahringinn (og fáránlegt að þurfa að hringja í 112 til að ná sambandi við lögregluna, og þurfa í sífellu að tvíútskýra tilefnið!) Sú litla varðstöð sem var í Tollhúsinu var svosum ekki merkileg og gæti hafa verið betri - en lausnin var svo sannarlega ekki að FJARLÆGJA hana !
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation