Brú yfir Sæbraut fyrir gangandi og hjólandi umferð, sbr. þær sem eru yfir Miklubraut og Kringlumýrarbraut.
Það er ótrúlega vont að þurfa að standa einum metra frá bílum sem keyra á ofsahraða framhjá á meðan maður bíður eftir að komast yfir Sæbrautina. Grindverkið við gatnamót Holtavegar og Sæbrautar gerir fátt annað en að minna á þá staðreynd hve hættulegt það er að standa þarna.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation